Jarðhitasýningin
Hellisheiðarvirkjun er sýningargluggi fyrir sjálfbæra jarðhitanýtingu Íslendinga. Skoðaðu einstaka margmiðlunarsýningu og njóttu leiðsagnar kynningarfulltrúa í virkjuninni þar sem fjallað er um virkjun jarðhitans á Hengilsvæðinu, jarðfræði og sérþekkingu Íslendinga á sviði jarðvarma. Orkuveita Reykjavíkur á og rekur virkjunina.
Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun er opin alla daga frá kl. 09:00-17:00. Stöðvarhúsið er við hringveg 1, miðja vegu milli Reykjavíkur og Hveragerðis.Stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar er einstakt mannvirki þar sem hægt er að njóta stórkostlegs útsýnis.
Frábærar veitingar í Kaffi Kolviðarhóll.
Sími: 412 5800, gsm 660 9400 og 660 9401 JLIB_HTML_CLOAKING
Opið alla daga frá kl. 09:00 - 17:00 (líka um helgar)



