Viðburðir

Steinasafn úr einkasafni Dr. Einars Gunnlaugssonar, jarðfræðings

Dr. Einar Gunnlaugsson, jarðfræðingur og Orkusýn ehf hafa komið fyrir steinasafni á þriðju hæð í Hellisheiðarvirkjun. Steinarnir eru úr einkasafni dr.Einars og margir hverjir fágætir, en spanna alla steinaflóru landsins.

Steinarnir eru allir merktir með nafni og hluti þeirra ekki undir gleri svo gestir megi handleika þá og skoða nánar.

Dr. Einar og Kristján Sæmundsson eru höfundar Íslensku steinabókarinnar sem fyrst var gefin út árið 1999 og hefur verið endurprentuð tvisvar sinnum.

 

Mikill fjöldi á sýningu í Hellisheiðarvirkjun

Um 500 manns voru viðstödd opnun sýningarinnar Heit list í Hellisheiðarvirkjun fimmtudagskvöldið 20. október, en þar sýna nokkrir listamenn sem verið hafa í samskiptum við Orkusýn að undanförnu verk sín. Listamennirnir eru Margrét Brynjólfsdóttir myndlistamaður, Katrín Pálsdóttir og Steindóra Bergþórsdóttir glerlistamenn, Helga Unnarsdóttir leirkerasmiður, Svava Grímsdóttir fatahönnuður og Dagný Magnúsdóttir alþýðulistamaður, en nemar í Landbúnaðarháskólanum á Reykjum sýndu blómaskreytingar. Kyrjukórinn frá Þorlálshöfn söng nokkur lög í upphafi dagskrár og síðan var haldin glæsileg tískusýning.Heit list

Sýningin er í anda þeirrar viðteknu venju hérlendis að virkjanir og orkuver séu opin almenningi og að menningarlíf sé eðlilegur þáttur í starfsemi þeirra. Verk listamannanna hafa verið í boði í minjagripaverslun Orkusýnar í virkjuninni. Sýningarsvæðið í Hellisheiðarvirkjun er á þrem hæðum og er áberandi í landslaginu á heiðinni. Sýningin verður opin alla helgina 21.-23. október samhliða jarðhitasýningunni í Hellisheiðarvirkjun.