Sýningaratriði

Á jarðhitasýningunni í Hellisheiðarvirkjun er hafsjór af upplýsingum á margmiðlunarformi um jarðhitanýtingu á Ísland.

Vinnsluferlið - Gagnvirk leiðsögn á framleiðsluferli Hellisheiðarvirkjun frá borunum til fullbúinnar afurðar.

Jarðhitakerfið - Grafísk stuttmynd sem lýsir jarðhitakerfinu; hreyfingar á flekaskilum sem valda hita og þrýstingi í jarðskorpunni og mynda jarðhitann sem nýttur er til orkuframleiðslu.

Nú erum við búin að talsetja jarðhitamyndina sem er meginefni í sýningunni okkar á íslensku, ensku, þýsku, frönsku, spænsku,rússnesku, ítölsku,  kínversku og japönsku! 

 

 

Brunnurinn - Saga og útivist á Hellisheiði; Skemmtileg samantekt á Hellisheiði með áherslu á sögu, útivist, náttúru, dýralíf og fl.

Jarðskjálftahermir - Í jarðskjálftaherminum er hægt að upplifa kraftinn af stærri jarðskjálftum sem orðið hafa á Íslandi í áranna rás.  Sem og búa til sinn eigin skjálfta!