Þjónusta

Kaffi Kolviðarhóll

Á 1.hæð er kaffihús, í boði er úrvalskaffi og aðrir drykkir og gott meðlæti.

Minjagripasala

Fræðsluefni um jarðhita, sérvalin minjagripavara, minjagripir sem tengjast staðnum, ljósmynda-bækur, jarðfræðibækur, gönguleiðakort.

Aðgengi

Næg bílastæði eru við virkjunina og aðgengi fyrir fatlaða er mjög gott. Það eru tvær lyftur í gestamóttökunni en byggingin er þrjár hæðir. Stólar, borð og snyrtingar eru á jarðhæð.

Verðskrá

800 kr.- Fullorðnir

Sérstakur afsláttur fyrir hópa 10 eða fleiri

Frítt - Börn að 16 aldri í fylgd með fullorðnum

 

Fundir og mannfagnaðir, viðburðir og vörukynningar

Spennandi aðstaða og umhverfi  í Hellisheiðarvirkjun.

Í miðrými Hellisheiðarvirkjunar er frábær aðstaða fyrir fundi og móttökur í mjög sérstöku umhverfi jarðhitavirkjunarinnar. Eins er húsið tilvalið fyrir alls kyns viðburði og vörukynningar. Hellisheiðarvirkjun er aðeins um hálftíma akstursfjarlægð frá Reykjavík, bílastæði eru næg og öll aðkoma til fyrirmyndar.

Í boði er öll nýjasta fundatækni og upplagt er að hefja eða ljúka heimsókninni með því að skoða jarðhitasýningu og njóta umhverfisins á stórum svölum þar sem gufustrókar stíga til himins. Við skipuleggjum líka stuttar skoðunarferðir um nánasta umhverfi, t.d. upp á Skarðsmýrarfjall þaðan sem útsýnið er stórfenglegt.

Í miðrými Hellisheiðarvirkjunar er kaffihús þar sem seldar eru allar veitingar og þar er lítil handverksverslun.

Hafðu samband við okkur.

Orkusýn ehf. JLIB_HTML_CLOAKING www.orkusyn.is

Auður Björg Sigurjónsdóttir 660 9400

Helgi Pétursson 660 9401